Skopmyndir.

Þessi er frá byrjun árs 2006.

scan

"Allah"

Skopmyndir.

Þegar þessi pistill er skrifaður er ekkert annað sem kemst að í fjölmiðlum nema þetta skopmynda mál og eru flestir búnir að mynda sér skoðun á þessu nú þegar. Mér finnst þetta bæði mjög alvarlegt mál og grátbroslegt. Það er ekkert nýtt að fólk er tilbúið að drepa hvort annað í nafni Guðs eða Allah, við Íslendingar tókum nú upp kristna trú undir ofbeldi og hótunum á sínum tíma og erum löngu búin að gleyma því. Það er einsog allir vita að það er allt orðið snarvitlaust í þessum MIÐAUSTURLÖNDUM og búið að hóta Dönum og öðrum skandinövum dauða ef til þeirra næst. Er það bara mín skoðun eða er Ofsatrúar fólk af öllum trúarflokkum “snarfocking geðveikt” , ég meina bara í mótmæla ölduni sem fylgdi þessu skopmynda krassi eru hundruðir manna búin að deyja...pælið í því.

Fyrir ykkur sem ekki hafið lesið kóraninn sem er bara ágætis lesning, enginn Tár Bros og Takkaskór eða neinn svoleiðis gullmoli, þá fjallar kóraninn um blíðu, umburðalyndi og þess háttar það er hvergi minnst á Jihad eða að þú megir drepa konuna þína fyrir að vaska ekki upp. Þar er heldur ekki minnst að það megi ekki teikna myndir af spámanninum, heldur er þetta hefð sem menn tóku upp á 9 öld og hafa menn haldið í hana þangað til að frændur okkar baunarnir ætluðu sér að vera fyndnir með þessu kroti og krassi. Ég flokkast undir að vera kristinn samt móðgast ég ekki þegar ég sé skopmyndir af Jesú eða Guði, jafnvel hef ég séð af þeim skopmynd þar sem þeir eru ef til vill búnir að fá sér of mikið neðan í því og þeim er heldur of VEL til vina. Við Íslendingar misstum okkur líka þegar síma auglýsingar Jóns Gnarr komu til sögunar og sýndum við svo ekki verður um villst að ið erum engu skárri....jú það var enginn drepinn á klakanum í tilefni þessarra auglýsinga.

Kannski snýst þetta um Skopskyn enda voru þetta kallaðar skopmyndir, eru sumir múslímar ekki með húmor fyrir svona krassi? Sigmund hjá mogganum er búinn að vera með skopmyndir af fólki og hlutum líðandi stunda í mörg ár, ekki ennþá hefur einhver af þeim sem hafa verið teiknaðir af honum séð það sem ástæðu til þess að hefja fjöldamótmæli og hóta morðum. Margir múslímar móðguðust af þessu og þá á að segja “skammi skammi þið gerið ekki svona.. það er ljótt að stríða”. Þá eiga teiknararnir bara að biðjast afsökunar segja af sér, eða hvað sem er til að lægja öldurnar.

Fyrir mjög fáan en mjög sýnilegan hóp heittrúaðra og ofbeldisfulla “Nuttcaseara” var þetta alger himna sending því nú lokksins var komin góð og gild ástæða fyrir því að fara út og mótmæla,henda bensínsprengjum og haga sér einsog vitleysingar. Enda saurga þeir ímynd þeirra múslima sem vilja bara hafa það næs og nenna ekki að standa í neinum fána brennum og þessháttar.

Í tilefni þessa pistils ákvað ég að teikna listaverk, EKKI skopmynd heldur listaverk svo það sé á hreinu enda er ekki húmor fyrir svoleiðis myndum, þessi mynd er meira svona respect til “Múhammed gamla” Það má þó enginn móðgast eða missa sig þó svo að Óla prik tæknin mín sé ekki uppá marga fiska ......                

                                                

  Högni


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband