Þetta þurfti ég að birta til leiðréttingar eftir minn fyrsta pistil.

Leiðrétting á fyrri pistli Ég er búinn að fá þó nokkrar athugasemdir um pistilinn sem ég skrifaði í blaðinu hér á undan, bæði neikvæðar og jákvæðar. Það sem fólk segir við mig flest er að ég hafi farið of langt yfir strikið og skilji ekki af hverju ég er að mæla með kannabisreykingum á meðal barna og unglinga. Það þykir mér miður að fólk hafi túlkað þetta svona en þetta var meint sem kaldhæðni og grín. Þegar ég tala um að ég hafi áttað mig á því að ég átti að taka betur eftir í tímum þegar kunningi minn var að versla dóp hélt ég að ég væri að skjóta það langt yfir markið. Þetta átti að vera augljóst grín (svona er ég lélegur húmoristi). Mér datt það fáránlegasta í hug sem “myndi opna augun mín” fyrir að taka ekki betur eftir í tímum og skrifaði það, sem sagt að dópneysla væri réttlætanleg ástæða fyrir dugnaði í skóla. Þegar ég las dálkinn Leiðindi datt mér ekki í hug að þetta viðtal hafi farið svona fram eins og það kom fyrir í blaðinu heldur að hér væri grín á ferð. Mér var sagt að það væru börn og unglingar sem læsu þetta blað og ég yrði að skammast mín á svona skrifum. Já skamm Högni, þetta má ekki.Ég ætti kannski að skrifa um slæma umgengni hér í bæ eða hvað það er léleg mæting á handbolta leiki en það ætla ég ekki að gera, þið getið lesið svoleiðis pistla í öðru hverju blaði. Ég bið forláts á þessari saurgun á réttlætiskennd ykkar (þá sem þetta varðar) og ég vona að þið fáið tíma til þess að sleikja sárin á blygðunarkennd ykkar sem ég illa særði.Högni vondi.

Minn fyrsti pistill 2004.

Þessi Pistill var minn fyrsti pistill og kom í bæjarblaðinu Lókal sem kom út í Mosfellsbæ. Ritstjórar þess blaðs voru Steindi JR og Hilmar Gunnarsson.

imagesCAUPYIF3

Hann fékk vægast satt blendnar móttökur þar sem ekki voru ekki allir að skilja kaldhæðnina sem fólst í því að nota öfgafyllsta dæmið hvers vegna maður á að vera duglegur að læra. 

Menntunn er mikilvæg geta víst allir verið sammála um en hvaða fag er meira mikilvægara enn annað og hvað er hrein tímasóunn. Hvaða kennari hefur ekki fengið þetta comment frá einhverjum “ég á aldrei eftir að þurfa að nota þetta”og var ég þessu mjög sammála hér áður fyr. Hvað er ég eiginlega að gera hér í handmennt, að prjóna og sauma? þessu furðaði ég mig á, svo og sem jöfnur og hvað þetta allt nú heitir í starðfræði,Gísla saga Súrssonar, hvenar á lífsleiðinni nota ég þetta og hvaða gagn hef ég haft af þessu hingað til?Það er ekki einsog einhver hafi labbað upp að mér og sagt “hei þú mátt eiga bílinn minn ef þú getur sagt mér hver var bróðir Gísla í Gíslasögu Súrsonar hét,eða að upp að mér hafi labbað svakaleg skutla og sagt “þú mátt sofa hjá mér ef þú getur sagt mér hvað stórsöngvarinn í brekkukotsannál hét “.Þó fannst mér danskann nú verst og afskaplega pínlegt að læra hana og fékk ég einkunnir eftir áhuga og eljusemi, sem sagt ekki háar einkunnir.Mér var það ekki ljóst svona ungur að það er mikilvægt að læra og taka eftir í tímum, þó svo að þú haldir að þú þurfir ekki að nota þetta í framtíðinni. Því að á ögurstundum gætir þú svo þurft að grípa í þessa visku svo sem í jólaboði í “Trivjal”eða að leiðrétta einhvern sem þér þykir leiðinlegur, það er ekkert skemtilgra en að gera það. Það sem opnað fyrir mér augun var það að þegar kunningji minn var staddur í henni “Kóngsins Köbenhavn” og lagði leið sína í hana Cristjaníu þessa elsku að kaupa sér hass en þá skorti hann nú orðaforða til að biðja um þessar guðsveigar sem þetta efni er ,og bölvaði hann sjálfum sér mikið fyrir að hafa ekki tekið meira eftir í tímum hjá henni Eddu Dönskukennara og grét hann þessa fávisku sína yfir því að skilja ekki þennan bauna sem hann var að tala við ,en hann tók víst nú aðeins meira eftir í ensku tímum að hanns sögn og þurfti hann að grípa til þess tungumáls og varð sér út um þessa vöru sem þarna var á boðstólnum.Hann reykti þessa jónu,  Ragnheiði og öllum öðrum starfsmönnum gaggó mos til heiðurs og þakkaði þeim fyrir að koma þó einhverju inn í hausinn á sér.Drífið nú í að ljúka þessu verkfalli af svo börn framtíðar geti nú farið að versla í Köben fljótlega. Högni.

 


« Fyrri síða

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband